Þetta gengur eitthvað illa hjá mér. Ég er búin að hafa 6mm taper í viku eða svo, en samt tekst mér ómögulega að koma 6mm tunnel í. Ég skil ekki hvað er að, mér finnst ég vera búin að prófa allt. Ég kem ýmsu drasli í gegnum eyrað á mér sem kemst ekki í gegnum tunnelið, ég get haft bæði 6mm taper og 2mm taper saman í gatinu í einu, ég er búin að reyna að troða tunnelinu í gegn með vaselíni og öllu, en ekkert gengur.
Ég bý útá landi, svo ég get ekki farið á neina tattoostofu til að redda þessu eða kaupa stærri taper.

Getur einhver hjálpað mér?