Ég hef mikið verið að spá í að fá mér tunnel. Hversu stór er minnsta stærðin á þessu? Og segjum að ég sé ekki algjörlega að fýla þetta, grær þetta þá aftur, eða sést greinilegt ör?

Og með þessi tvö göt, mig langar að fá mér gat í vinstri augnabrún og í miðjuna á neðri vör.

Spurningin er, ég hef heyrt að ef maður fær sýkingu í gatið í augnabrúnini, getur maður þá blindast?



Bætt við 12. desember 2006 - 21:06
minnsta stærðin = það sem maður byrjar á :)