Blekaður eða ekki blekaður það er spurningin

Hvernig skal finna drauma húðflúrið og hvernig skal viðhalda því.

Ég vona að þið gerið þroskaða ákvörðun þegar tíminn kemur til að fá sér húðflúr því það gæti komið sá tími að þú sjáir eftir því.

Ef þú ert nú þegar með eitt eða fleiri húðflúr þá vona ég að þú sért stolt/ur af því/þeim, En mest af öllu sáttur með þitt skinn.

Hugsaðu ekki bara um stutta stuðið heldur langtíma markmiðið sem húðflúr er.

Muntu verða sátt/ur við þitt húðflúr sama hvaða stefnu líf þitt tekur ?

Viltu hafa það þegar þú ert orðin móðir/faðir? Verður þetta ok þá ?

Ég man eftir gaur sem fékk sér HUGE djöfla húðflúr á bakið á sér fyrir 10,árum þegar hann var rétt um 20 ára gaman að vita hvað honum finnst um það í dag ..

Ef þú ert að hugsa um að fá þér húðflúr þá mæli ég með að þú hugsir málið í nokkrar vikur bara til að vera 100% viss um að þú viljir það og að þetta sé ekki stundarbrjálæði. !

Vertu 140% viss um að þú viljir þetta annars bara sleppa því
Ef þig langar í húðflúr þá er þetta ekki léttvæg ákvörðun þó svo að það sé til laser aðgerð til að fjarlægja húðflúr þá á ekki að hafa það í huga þegar þú ert að hugsa um að fá þér húðflúr.

Hversu skringilega sem það hljómar þá mæli ég ekki með því að fólk fái sér húðflúr, þó svo að ég sé hrifin af þeim.

þú ert Fullorðin þegar þú mátt taka ákvörðun um það að fá þér húðflúr svo að þú getur tekið ákvarðanir sjálf/ur, Þegar þú ert að velta því fyrir þér að fá þér húðflúr skaltu alltaf spyrja þig hver ástæðan er fyrir því.

Ekki fá þér húðflúr vegna utanaðkomandi þrýstings eða fyrir neinn nema þig sjálfa/nn, Gerðu það bara fyrir ÞIG.

Ef þú ert þú eftir að hafa spurt þig að þessum spurningum og ert viss um þig langi ennþá í húðflúr þá skalltu SKELLA ÞÉR Á EITT (eða tvö)

Rétta húðflúrið er það sem lítur vel út og þýðir eitthvað fyrir þig og er framlenging af þínum persónuleika þá máttu vera stolt/ur afþví.!