Halló allir,

Ég er orðin stjórnandi á þessu áhugamáli ásamt myhateisyourpain og kyssuberi. Ég rakst á þetta áhugamál fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan og hef kíkt hingað nánast daglega síðan.

Ég hef haft áhuga á húðflúrum og götum síðan ég var 16 ára og fékk mér fyrst gat í nefið. Núna er ég með sex húðflúr, stór og lítil eftir fimm listamenn, og fimm göt. Ég hef brennandi áhuga á félagslegri og listrænni hlið húðflúra og hef skrifað hér tvær greinar sem koma inn á félagslegu hliðina.

Það sem mig langar aðallega til að gera hér er að vera virk í greinaskrifum og kynna þannig fyrir fólki hinar fjölmörgu hliðar body modifications sem eru til. Ég myndi segja að ég viti meira en flestir um þetta áhugamál, en minna en margir þó :)

kv. creampuff