Uppsögn Þá er komið að því að ég segi upp sem stjórnandi hér á Húðflúr og götun. Ástæðan er einföld, ég er farin að vinna innan þessa geira, þ.e. götunar geiranum.
Ég vil halda þessu aðskildu en ég mun samt áfram vera notandi enda þrælskemmtilegt áhugamál og sífellt að verða vinsælla og vinsælla.

Ég viðurkenni að þetta er að vissu leyti erfið ákvörðun en samt sem áður rétt… Maður getur ekki leyft sér allt :) Áhugamálið hefur vaxið gríðarlega og ég er viss um að það muni gera það áfram. Svo fer vonandi tattoo/piercing menningin hér á landi að stækka einnig ;)

Ég tel mig hafa gert góða hluti hér frá því áhugamálið var stofnað 12. nóvember 2006 og ætla ég mér að gera enn betur sem gatari. myhateisyourpain hefur tekið við stjórnendastöðunni og óska ég honum alls hins besta! Toppstrákur hér á ferð með gífurlegan áhuga og þekkingu á þessum lífstíl.

Ég vil þakka öllum meðstjórnendum mínum (núverandi og fyrrverandi) fyrir samstarfið og einnig ykkur notendum fyrir skemmtilega tíma (nú hljómar þetta eins og ég sé endanlega að láta mig hverfa)

Vonast síðan til að gata sem flest ykkar í komandi framtíð! Hoho

Kv. PraiseTheLeaf
http://www.icelandtattoo.com
http://www.myspace.com/icelandpiercing