Mitt fyrsta Tattoo Ég mætti á staðinn klukkan 12:30 ásamt vinkonum mínum. Við settumst niður í rólegheitunum og töluðum við Chris á T&S og ákvaðum að stækka myndina soldið mikið. Hann fór inn og byrjaði að stækka. Um syrka 13:00 settist ég í stólin og hann byrjaði að flúra.
Ég var orðin soldið stressuð þegar ég settist því þetta var mitt fyrsta.
En ég harkaði þetta bara af mér og hann byrjaði. Þett var soldið vont í fyrstu þegar hann var að gera útlínurnar, en ég var svo dugleg stelpa að ég öskraði ekki neitt.
Síðan þegar útlínurnar voru búnar byrjaði hann að fylla inní og ég orðin ekkert smá óðolinmóð og vonaðist til að þetta færi að vera búið bráðum.
Síðan þegar hann var loksins búin með tibalið fórum við út í sígó, þá var bara hjartað og rósin eftir.
10 mín seinna settist ég aftur í stólin og flúrið klárað, hann byrjaði á því að gera stöngina á rósina og var það frekar vont þar sem hún er alveg í miðjunni, síðan fór hann yfir í hjartað þegar stönginni var lokið og það var ekki alveg eins vont en síðan þegar hann var búin með hjartað var rósin bara eftir og hún var alveg svakaleg ég held að ég hafi aldrei fundið fyrir jafn miklim sárskauka og þá það var ekkert smá vont. Svo þegar þetta var búið var ég ekkert smá fegin að þessu væri lokið.
Þannig að núna er ég komin með mitt fyrsta tattoo eftir langa bið og langa ákvörun.

P.S. Myndin sem fylgir með er raunverulega útgáfan, en hún er ekki alveg eins og tattooið, rósin er meira rauð bleik og hjartað er ljósara, rósin var stækkuð um myndin sjalf líka.
Ef þér lýst ekki á það sem þú sérð hættu þá að horfa…