Session 2 - Báðir vængir komnir. Ég fór í gær í annað sessionið mitt hjá Vincent. Ég var massa þun eftir mína eigin afmælisveislu sem var á föstudagskvöldinu og var því ekki jafn óþolinmóð að fá nálina í mig og síðast.

Það var alveg meiri háttar fyrir Arnór og Vincent að spegla vænginn yfir á hina hliðina og svo kom það líka í ljós að hjartað mitt væri ekki alveg 100% í miðjunni. En Vincent var rosa sniðugur og fixaði málið bara, einsog sést á myndinni :oþ

En já, vængurinn komst á endanum á réttan stað og þá var hægt að byrja á útlínu vinnunni. En eisog ég sagði þá var ég massa þunn og ég er bara ekki frá því að það er verra að fá sér tattoo í því ástandi…
En ég og Vincent höfum nóg að tala um þar sem hann var líka í afmælinu mínu og skemmtum við okkur vel saman með að rifja upp vitleysuna frá kvöldinu áður.

En ég var því miður svo óheppin að ég þurfti að fara að vinna beint eftir tattoo-ið, það var svo ömurlegt. Þunn og aum í vinnunni er ekki eitthvað sem ég mæli með og var ég eiginlega óvinnuhæf, en ég hefði ekki sjéns á því að mæta ekki.

Strákarnir í vinnunni tóku því ekkert illa þegar ég beuð uppá smá stripp og fór úr að ofan til að sýna afraksturinn. En öllum fannst þetta mjög flott, svo er það líka orðin venja í vinnunni að ég sé eitthvað að rífa mig úr til að motna mig af þessu annars mjög svo fína tattoo-i :oþ

En mig langar líka að segja að ég á svo elskulega vini sem gáfu mjög rausnarlega í tattoo baukinn minn á afmælinu og geta þau líka verið ánægð með það að ég mun alltaf bera gjöfina þeirra og var það líka það eina sem mig langaði í :oþ

Það er búið að vera merkilegt hvað ég fæ mikið af fáránlegum spurningum í sambandi við þetta tattoo, jafnvel þó ég taki það fram að það sé ekki klárað. ég hef verið spurð hvort ég ætlaði bara að fá mér þennan eina væng, sem ég svaraði auðvitað neitandi, ég mundi bara flúga í hringi á einum væng. Eða hvort ég ætlaði ekki að láta fylla uppí vængina eða bara hafa þá svona hálf óuppfyllta…

En já, ég get ekki hætt að brosa og loksins er heildarmyndin komin þó þetta sé nú ekki tilbúið. En nú er bara lítið eftir þar sem aðal vesenið er afstaðið.

Með þakkir fyrir góðar viðtökur
Sleepless