Það er ekki það langt síðan að ég skrifaði um mikla sýkingu sem ég fékk í annað brjóstið, eftir að ég fékk mér gat í geirvörtu.

Ætla ég að taka það strax fram að gatið var mjög vel gert og sko langt í frá að vera gataranum að kenna. En bara til þess að vera kurteis ætla ég ekki að gefa upp nafn á þeim sem gataði mig, þar sem ég tel að það sem ég lenti í komi gataranum ekki við og findist mér ókurteist að fara nafngreina einstaklinga sem höfðu ekkert með þessa atburðarás að gera.

Málið hjá mér er að þegar ég fer og fæ mér gatið er ég gjörsamlega grunlaus um það að beggjamegin í minni fjölskyldu hefur verið mikið um brjósta vesen á konum. Það er þá aðallega blöðrumyndun með miklum sýkingum í brjóstum sem venjulega kemur ekki fram fyrr en eftir barneignir, eitthvað sem ég kom sennilegast af stað með að fá mér gat, þar sem ég á ekki börn.

Læknar telja að ég hafi annað hvort fengið skemmd eða hafi verið með galla í mjólkurgöngunum og síðan í byrjun mars er ég búin að fara í minniháttar aðgerð þar sem brjóstið á mér var opnað og skýkingu hleypt út, og verið meira og minna frá vinnu í viku á þriggja vikna fresti vegna endalausra sýkinga og stend frammi fyrir því að hugsanlega þurfi að skera part úr brjósti til að taka umrædda skemmd/galla út.

Samt er nú reynsla mín af þessu gati ekki svo slæm, og reyndar hefur gatið sjálft nýst örlítið í þessum veikindum, þar sem ég hef sloppið við að þurfa leggjast undir hnífinn aftur þegar sýkingin blossar upp. Málið er að fyrst þegar ég fékk sýkingu fann hún enga leið út og þessvegna þurfti að skera. En í öll næstu 3 skipti hefur sýkingin blessunarlega fundið leið út með götunum og þannig sparað mér mikinn sársauka og frekari misþyrmingu á brjósti.

En áðuren einhver fer að vorkenna mér vil ég samt segja að auðvitað er það erfitt fyrir mig að hugsa til þess að ég sé hugsanlega búin að missa not af öðru brjósti þegar ég fer svo loksinns að eiga börn. En ég tel að enginn geri mér greiða með að vorkenna mér, hjálpið mér frekar að koma þessu á framfæri svo hugsanlega við getum saman bjargað fallegu brjósti frá sömu örlögum :oþ
Og helst vildi ég líka sjá stofurnar sjálfar vekja athygli á þessu.

En ég er í dag bara þakklát fyrir að ég lét bara setja í aðra geirvörtuna og því von fyrir mig enn. En ég vil nú samt þakka fyrir fram fyrir allar þær góðu kveðjur sem ég veit að munu koma í stað vorkunn. Og endilega björgum brjóstum saman með ábyrgri umræðu :oþ

XxX
Sleepless