Framhald af Session 7 - PraiseTheLeaf Ég fór síðastliðinn föstudag, 20. apríl og hélt áfram með myndina undir. Getið lesið um fyrstu umferðina HÉR

Ég bað aftur um deyfingu en fannst hún ekki virka neitt að viti og fann ég ágætlega til allan tímann. Held að efnið hafi ekki náð að fá nægan tíma til að virka. Ég þraukaði þetta samt alveg enda tók þetta ekki nema um 30 mínútur. Deyfingin heitir “Vaso Caine” og inniheldur Lidocain.

Ég hætti þó ekki þegar þetta var búið og var ráðist á að byrja á bakgrunninum. Tók ca klukkutíma að flúra en við gerðum göngustíg sem fer bakvið nokkrar fígúrur og myndast nú nokkurskonar samræmi þó að fullt vanti ennþá. Það á eftir að skyggja undir allar fígúrurnar, bæta við blómum/gróðri, grasi og svo verður settur himinn. Ég er með ákveðna hugmynd sem er þó erfitt að lýsa :)

Myndir af þessu koma inn á næstu dögum og svo kemur lokamyndin vonandi mjög bráðlega þar sem stefnan er að klára þetta allt saman í maí :þ

Býst við að ég eigi 2-3 session eftir ef svo mörg.. Hlakka til þegar ég hef fengið fallega hendi ;)