Sælt veri fólkið
Ég er gatari og annar eigandi Tattoo og Skart.
Það er alltaf verið að spyrja hversu gamall/gömul þú þarft að vera til að fá göt, það er 18 ára nema með leyfi foreldra.
Ég er að fá fólk til mín á hverjum degi sem er að reyna falsa leyfi, málið er að ég fer bæði í þjóðskrá og símaskrá og það er heldur erfitt reyna þá leið.
Ef þú værir sjálf/ur með þennan rekstur og værir búin að leggja allt í þetta þá mundir þú ekki vilja fá kærur á þig vegna þess! er það nokkuð?
Málið er að það eru til foreldrar þarna úti sem yrði alveg geggjaðir ef barnið þeirra kæmi heim með gat sem það fekk ekki leyfi til að gera.
Sýnið okkur virðingu sem eru að reyna reka tattoostofur á Íslandi að ekki koma án leyfis
Kveðja Sessa
Tattoo og Skart