Götinn sem ég er með
Ég er með 4 göt í eyrunum og 1 í neðri vöru.
Er með 2 í hægri eyrnasneppli og svo 1 í miðjuni á sitthvoru meginn.
Það fyrsta fékk ég mér í eyrnasneppilinn þegar ég var 6 ára, númer 2 kom þegar ég var 10 ára, hin 2 komu í fyrra þegar ég var 16 ára, samt með mánaðar millibili.
Svo er ég með eitt gat í neðri vör í henni miðri. Það var gert inn á vist (er í heimavistarskóla (ML For Life)), það heppnaðist bara mjög vel og ég get ekkert sett út á það, vinur minn stakk fyrir mig því að ég meikaði ekki að gera þetta sjálfur.

Ég fékk ekki sýgingu í neitt af þessum götum.

Tattooið mitt
Ég er aðeins með 1 tattoo og er það staðsett á hægri kálfa.
Er með mynd af trúð sem er með frekar sick bros og heldur á blóðugum hníf (sendi inn mynd af honum hérna einhvertíman) þetta er svona spýtukalls trúður og ég er alltaf jafn ánægður með hann.
Maðurinn sem flúraði mig heitir Benni og býr á Selfossi, hann vinnur heima hjá sér (er samt með leyfi) og er hann algjör snillingur og mjög skemmtilegur kall mæli með honum, Ég mun allavega í frammtíðinni fara til hans.


Ég hef bara átt mjög góða reynslu af tattoo götun.
það er svo stefnt að fá sér fleiri tattoo eða jafnvel göt árið 2007