Þegar ég var 3 ára gömul fór hún móðir mín með mig og lét gata á mér eyrun beggja megin. Henni fannst betra að gera það svona snemma því þá myndi ég ekkert muna eftir því.

Svo var mig farið að langa í gat í naflan því allar vinkonur mínar voru komnar með gat í nabblan og ég suðaði í mömmu en hún vildi ekki leyfa mér það,þangað til að ég sagði við hana að ég ÆTLAÐI að fá mér annað hvort í nefið eða naflan (því ég er so mikil frekja hehe)
Svo 5 júlý 2002 þá fór ég með sistir minni í Hókus pókus og fékk gat í naflann,fannst það ekkert svakalega vont en það var ekki gott heldur.
Svo ári seinna (5 júlý 2003) þá var mig farið að langa í meira, og þá var þetta orðið sona vani hjá mér að fá mér einu sinni á ári (ekki spyrja afhverju).
En þá áhvað ég að fá mér í Tunguna og náði ég að plata elstu sistir mína til að fá sér líka,
En í það skiptið fór ég til Fjölnis og Búri gerði það gat.
Mér fannst það ekkert svakalega gott og varð frekar bólgin en ég lifði samt af.
Svo ári seinna manaði ég sjálfan mig í að fá mér gat í Geirvörtuna hægra megin, og varð mest stressuð í heimi yfir því enda að tala um það sem barnið mitt þarf að sjúga í framtíðinni.
Gékk e-h erfiðlega að merkja því hjartað sló svo hratt. en það tókst að lokum og það var ekkert smá vont. Heyrði að það væri samt verra fyrir stráka,því þeir eru með minni geirvörtur heldur en við stelpurnar.
Svo einhverntíma rétt eftir það þá fékk ég mér Helix (í brjóskið þarna efst í eyranu) fann varla fyrir því en minnir að það hafi verið gert í Meba kringlunni.
Svo 5 júlý 2005 fékk ég mér svona Tragus og verð ég að segja að ég held að það hafi verið verst af öllu held ég en það var gert í Meba kringlunni líka og lét ég bara skjóta.

Og þá er bara einn staður eftir sem ég ætla að fá mér,
(En þori samt ekki í það alveg strax.)

Takk fyrir mig.