Götin

Ég var fyrst götuð þegar ég var 6 ára, fékk göt í eyrun sem reyndar gréri fyrir nokkrum árum seinna því ég þoldi ekki að vera með lokkana í… fékk alltaf sýkingar.

Þegar ég var 12 ára var gatað aftur en það fór sem áður, gekk vel til að byrja með en fékk síðan sýkingar og varð að taka lokkana úr á endanum.

En þar sem ég er þrjóskupúki fór ég þegar ég var nítján ára til að láta gata enn einusinni, lét gata þá tvö göt í hvort eyrað, en þar sem ég hlýt að vera doomed þá fékk ég enn einu sinni sýkingar sem var alls ekki vinsælt.

Núna í vor fór ég þó til vinar míns sem er gatari og bað hann um að gata á mér geirvörturnar, byrjaði á því að fá svaka glott frá honum og svo var gert allt ready, pinnarnir sótthreinsaðir ásamt öllu öðru sem kom nálægt verðandi götum.
Var FJANDI sárt að fá götin en var algerlega þess virði.
Leiðbeindi Fíi mér einnig algerlega í því hvernig ég ætti að hugsa um götin ásamt því að ég gat alltaf farið til hans ef eitthvað bjátaði á.
Gengur enn vel að vera með þessu göt og er ég að spá í því að láta Fía gata á mér eyrun með nál og ekkert rugl :)


Flúrin

Fékk fyrsta flúrið 4 apríl 2003, fór til Svans á Tattoo og Skart, vinkonur mínar gáfum mér þetta flúr í 18 ára afmælisgjöf og er ég þeim afar þakklát fyrir það.
Ég kom með mynd af galdratákni sem ég hafði ætlað mér að fá mér síðan ég var 13 ára, verndarmerki.
Tók ekki neitt sérlega langan tíma að setja þetta á mig en fjandi var það sárt, en flúrið er rétt fyrir ofan hægri öklann á mér.

Flúr númer tvö var sett á mig 28 maí 2005, daginn eftir að besti vinur minn dó og er það í minningu hans.
Ég fór til Fjölnis í þetta skiptið, fór með mynd af Rósinni til hans og kom tvem tímum seinna en þá var hann búinn að modifya hana fyrir mig.
Ég fann ekki fyrir því þegar Fjölnir var að flúra mig, var eiginlega bara í mínum eigin heimi en eftir rúma klst var ég farin að finna smá fyrir þessu.
Rósin er frábærlega gerð og er ekkert hægt að setja út á hana, hún kemur frábærlega út á bakinu á mér rétt fyrir neðan hálsinn.

Nýjasta er orðið “Minning” sem er á hægri úlið hjá mér.
Vincent flúraði þetta á mig þann 6 mars 2006 og er það listilega gert hjá honum, tók enga stund að smella þessu á mig… tók held ég lengstan tíma að finna gott font í þetta en ég vildi einfalt og fallegt :)
Eins og með hin er smá saga á bakvið þetta flúr, hús fjölskyldu minnar brann 1 mars 2006 og fóru allar myndir og allt úr barnæsku í eldinum, svo núna er ég með Minningu sem fer aldrei :)

Næst er ég að fara til Búra í flúr… kem líklegast með einhver orð um það hingað eftir það ásamt myndum :)
En Fíi er að modifya fyrir mig flúrin sem ég er að fara að fá mér ásamt því að vera líklega að fara að gata eyrun á mér og að vera að fara að gata álfinn hana systur mína, Addys.

Mbk. Taran