Götun - Mín reynsla Sæl, öll.
Gummi heiti ég og bý í mosfellsbænum.
Ég fékk mér gat í hægra eyrað fyrir einhverjum 2 árum síðan, það var bara gert með byssu á Pílus Hárgreiðslustofu. Ég var með þann lokk í svona 2 mánuði, svo gaf pabbi mér lokka í jólagjöf, geggjað töff, en ég týndi báðum festingunum, og hætti að ganga með lokk í því eyra, en gatið er þarna alltaf.

Svo fyrir svona 3 vikum fór ég aftur á pílus og fékk mér í vinstra eyrað, og er auðvitað ennþá með byrjandalokk í því, samt spurning hvort ég breyti um um jólin :) Hver veit.

Svo langaði mig svakalega í gat í vörina eða augabrúnina. Gat í vörina afþví að Chester í Linkin Park er/var með þannig, og ég prófaði einu sinni þegar ég var svona 12 ára, að setja svona gervihring í vörina, og það fór mér nokkuð vel :)

Augabrúnina, afþví að mér finnst það geðveikt töff, og var alveg handviss um að það færi mér vel, og það fannst það öllum.
Svo ég fór að kynna mér efnið, fór á þessa síðu, og allar helstu tattúsíðurnar, og komst að því að Tattoo & Skart væri besta stofan, og Sessa væri best í þessu.


Ég spyr mömmu, hvað henni mundi finnast um að ég fengi mér gat í vörina eða augabrúnina. Hún sagði að sér fyndist allt í kringum munninn svo viðkvæmt, og svo miklu meiri hætta á sýkingu. En í augabrúnina væri allt annað mál :)
Svo ég hringi niðrí tattoo og skart, og þeir segja bara, koddu ef að þú hefur skriflegt leyfi.
Svo ég fór, bara í morgun, og fékk mér gat í hægri augabrúnina, alveg meistaralega vel gert hjá Sessu. Sagði henni einmitt að það væri mjög vel talað um hana á öllum svona síðum, og hún var alveg geðveikt kát með það.


Þetta fór þannig fram, að maður labbar inn í herbergi, það eru 3 svona merkt herbergi í húsinu. Eitt fyrir tattú, eitt fyrir götun og eitt fyrir sótthreinsun. Svo auðvitað bakvið, sem að er bara kaffistofa og eitthvað.
Hún merkir fyrst með rauðum penna, þarsem að gatið á að fara, og spyr þig svo álits. Þetta var mjög flott hjá henni, og ég var bara alveg sáttur. Svo leggst maður niður á svona bekk. Svo tekur hún töng, og klemmir upp skinnið. Svo spyr hún bara “ertu tilbúinn?” og stingur svo nál í gegnum skinnið. Ég var með lokuð augun, en mér fannst þetta alls ekkert svo óþægilegt. Bara smá stingur fyrst, en ekkert verra en að fá sprautu :)
Svo bara setti hún lokkinn í, og þetta leit frábærlega út :D

Þetta var mín reynsla :D

Fylgir mynd með :)
Hafðu Efni Á Því Sem Þú Segir