Jæja ég skellti mér í House of pain í dag og fékk mér eitt stykki tattoo. Ég mætti galvaskur með vini mínum sem einnig var að láta setja á sig tattoo á sama tíma.

Það var ekki Sverrir sem setti tattoo´ið á mig, heldur snillingur að nafni Jason Thompson, og það var hinn Jasoninn (Jason June) sem setti tattoo'ið á vin minn.

Þá var komið að því, ég settist í stólinn og var búinn að undirbúa mig undir einhvern sársauka en mér til mikillar furðu var þetta eikki nærrum því eins vont og ég var búinn að ímynda mér, vegna þess að mér þótti þetta frekar vont seinast.

Ég var búinn að ákveða að láta setja yfir táknið mitt en Sverrir sagði að það væri eiginlega of stórt og að það myndi alltaf sjást í gegn þannig að ég ákvað að láta setja í kringum það og bakvið það og var 'Þessi' mynd fyrir valinu.

Á meðan hann var að tattoo'a mig spjölluðum við saman um hitt og þetta og hann sagði mér að hann væri frá New Orleans og bjó í Louisiana þegar flóðin skullu á þetta svæði og húsið hans var eitt af þeim sem bara skoluðust burt þar sem hann bjó á ströndinni. Og töluðum í smá tíma illa um hinn snarheimska Georg Tvöfaltvaff Bush forseta Bandaríkjanna.

En síðan fórum við bara að tala um hans reynslu sem húðflúrari tala um það sem honum finnst skemmtilegt að gera og við töluðum um tónlist og bara helling og það lét mig hugsa miklu minna um það sem var verið að gera og gerði reynsluna enn sársaukaminni.

Og síðan eftir að þetta var búið þá voru Jasonarnir að spjalla um Pantera og J.June sagi okkur frá því þegar vinur hans sem er í hljómveit sem hitaði einus sinni upp fyrir Pantera hafi ætlað að tala eitthvað við Phil söngvara Pantera en að Phil hafi bara verið með eitthvað þvílíkt stórstjörnu attitjúd og dissað hann, og eftir það voru Jasonarnir bara eitthvað “yeah he's a fucking cock sucker man…” og “Pantera would've been a great band if they didn't have a singer..”

Síðan spjallaði ég við hann um að láta hann hann fyrir mig tattoo og honum leyst mjög vel á það:)
Og ég ætla að fara til hans eftir áramót.

En allvega þá er ég mjög ánægður með nýja tattooið og ég mæli hiklaust með honum Jasoni Thompson:D
kv. Liverpool