Hvar fannst þér verst að fá þér tattú? (+ meira röfl í mér) Mig langaði að forvitnast aðeins um hvar fólk hefur fundið fyrir mestum sársauka þegar það hefur fengið tattúin sín? Sumir eru auðvitað með kinký fettish fyrir sársauka og fíla það meir og meir eftir því sem það er verra en förum ekki nánar útí það!

Sumir staðir eru auðvitað verri en aðrir og ég hef heyrt að það sé hell að láta tattúvera á slímhúð (innan á varir t.d.). Sömuleiðis er það víst mjög vont að láta tattúvera á hauskúpuna á sér og helst það í hendur við að láta tattúvera þar sem stutt er í beinið. Ristin er víst líka freeekar sársaukafull.

Sjálfur er ég nú bara með tvö tattú þannig að kannski er ekki mikið að marka mig :) En ég get hins vegar vottað það að það var MIKILL munur á sársauka. Fyrst fékk ég mér á upphandlegginn og það var bara svona nokkuð óþægilegt. Var orðinn frekar aumur í húðinni undir lokin eftir alla þessa ertingu en ég var svo sem ekkert kvalinn. Upphandleggurinn er “klassískur” staður fyrir tattú og sumir vilja jafnvel meina að hann sé hallærislegur og of “venjulegur.” Fuck that segi ég nú bara! Upphandleggurinn er líka kjörinn staður fyrir þá sem eru að fara að fá sér sitt fyrsta tattú og eru hræddir um að það verði of vont fyrir þá til að höndla það. Ef einhver hefur áhyggjur af því að tattú á upphandlegg afmyndist þegar vöðvar stækka þá er það afar ólíklegt. En eins og PraiseTheLeaf benti á þá getur það hins vegar virkað minna en í upphafi ef menn verða mjög massaðir :)

En þetta var smá útúrdúr. Seinna tattúið mitt er hins vegar á milli herðarblaðanna á mér og það var VONT! Mér leið bara mjög illa meðan á þessu stóð. Svanur gerði bæði tattúin mín og hann sagðist alveg skilja hvað ég væri að ganga í gegnum, þessi staður væri helvíti. Þetta tók um 45 mínútur og síðustu mínúturnar var mér hreinlega farið að langa til að gráta! Það var líka einhver annar útúr tattúveraður gamall gaur á stofunni og hann tók í sama streng og Svanur og sagðist vorkenna mér, og hughreysti mig og sagði að þetta væri alveg að verða búið.

En hvað sem öllum sársauka líður þá var þetta tvímænalaust þess virði og ég myndi pottþétt gera þetta aftur fyrir rétta tattúið.

Ps. Meðfylgjandi mynd er af Phil Anselmo (söngvara Pantera) en hann kallar ekki allt ömmu sína og er með fucking tvo tattú á hauskúpunni takk fyrir túkall! Hann er líka með slatta af öðrum töff tattú-um, enda einn mest töff gaur á jarðríki. Fyrir utan David Hasselhoff að sjálfsögðu.
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _