Við viljum bjóða sillymoo velkomna til starfa sem nýr admin hér á áhugamálinu okkar. Eins og einhverjir hafa kannski orðið varir við höfum við BudIcer ekki alveg náð að sinna okkar skyldum hér eins vel og við hefðum helst kosið, hann vegna óhóflegrar sumarvinnu og ég vegna ófædds barns míns. Því er það okkur sönn ánægja að fá sillymoo í lið með okkur til að stuðla að betra og virkara áhugamáli.

sillymoo mun líka hljótast sá heiður að taka við umsjón triviunnar af mér og óska ég henni alls hins besta í starfi. Verið nú samt ljúf og góð við hana og gefið henni svolítinn tíma til að koma sér almennilega inn í starfið áður en þið farið að reka á eftir henni með að skipta út spurningum og slíkt ;)

Sillymoo velkomin í hópinn, hlökkum til að vinna með þér.

Tzipporah