Þessi vísbending kemur aðeins of seint en straumbreytir fartölvunnar minnar tók upp á því að bræða úr sér í vinnunni, þannig að ég hafði enga tölvu í gærkvöldi né nótt.

Það voru fullt af réttum svörum 14 talsins af 24 ágiskunum sem sendar voru inn, því er ljóst að ennþá á talsverður hópur eftir að finna rétta svarið. Þeir sem fengu hinsvegar 4. stigin eru:

Padfoot
DrHaha
Prongsie
eyrnaslapinn
dala
DavidOrri
Snitch
Cho
lamuradi
Weasley
majawolfy
RemusLupin
Murtagh
LilyEvans

En næsta vísbending sem er sú þriðja í röðinni gefur eins og alltaf þrjú stig:

Persóna þessi barðist í ráðuneitinu í lok Fönixreglunnar (bókarinnar).

Lifið í lukku!
Voldemort is my past, present and future.