Ég byðst velvirðingar á því að síðasta vísbending var eingöngu uppi í 17 klukkustundir. Hinsvegar voru allflestir þeir sem giska í hverri vísbendingu búnir að kasta fram ágiskun sinni og allir höfðu þeir rangt fyrir sér.

Ástæðan fyrir því að þessi vísbending kemur snemma er sú að ég er nú að fara að fljúga til London í gegnum Sameinuðu Arabísku Furstadæmin og mun ég eyða degi í London til þess að fylgjast með leik Chelsea-Arsenal. Mun ég því líklega ekki komast á netið fyrr en á mánudags kvöld og taldi ég því rétt að setja inn þessa vísbendingu svo þið hefðuð eitthvað til að brjóta heilan yfir um helgina.

Eins og áður sagði, ekkert rétt svar í gær svo við förum bara beint í þriðju vísbendingu sem gefur þrjú stig. Enn er spurt um persónu:

Hann tók sprota annars galdramanns og framkvæmdi galdur með honum.

Sendið svörin á mig, njótið helgarinnar, lifið í lukku!
Voldemort is my past, present and future.