Loksins tókst mér að rugla alla. Þrátt fyrir um það bil tuttugu ágiskanir var engin þeirra rétt. Þvert á móti voru flestir frekar langt í burtu frá réttu svari.

Það var því enginn sem fékk fimm stig. En við skulum sjá hvort einhver geti unnið sér inn fjögur stig.

Önnur vísbending, fjögur stig, enn er spurt um persónu:

Persónan kemur aðeins fyrir í einum kafla og við vitum fyrir víst að hann er ekki og hefur aldrei verið nemandi í Hogwarts.

Nokkrar tilkynningar hérna. Í fyrsta lagi senda svörinn inn á mig, ekki svara grein!! þurfti að eyða tveimur svörum þannig.

Í öðru lagi, ég vonast til að koma vísbendingu 3. inn áður en ég fer frá Taílandi, en annaðhvort vísbending 3. eða vísbending 4. mun verða degi of sein, byðst afsökunar á því.

Að lokum, kýkjið á korkana, flokkurinn annað er kominn inn og búið að setja 5. og 6. bókina undir flokkinn bækur.

Lifið í lukku!
Voldemort is my past, present and future.