Jæja, þá er fimmtu spurningu lokið, það er að komast smá mynd á stigatöfluna, aðeins tveir nýjir notendur að þessu sinni. Stigin dreyfast vel allt frá toppnum niður á botn og því ljóst að þetta á eftir að vera spennandi að sjá hvernig fólk á eftir að standa sig.

Það voru nokkur rétt svör sem unnu sér inn eitt stig:

snick
bellatrix
Cho
ellipelli
cedrella
aspirine

Rétta svarið var Hermione Jane Granger. Það eru tveir hlutir sem ég vill segja um þetta svar, í fyrsta lagi þá sagði ég aldrei að hún hefði verið í Ravenclaw, aðeins það að flokkunarhatturinn sagði henni að hún mundi passa vel í Ravenclaw. Í öðru lagi var ég að fiska eftir milli nafninu og aðeins örfáir svöruðu því, ég hinsvegar klikkaði á því að segja það í byrjun og því varð ég að gefa rétt fyrir Hermione og Hermione Granger.

Stigataflan lítur því svona út:

Artharas 23
Kat701 20
JeffWho 16
DavidOrri 16
Weasley 15
Snitch 15
MissBlack 13
neonballroom 11
LilyEvans 11
katta 10
DrHaha 10
lizl94 9
Padfoot 9
majawolfy 9
flottar 8
Bangso 7
Cho 7
lamuradi 7
snilli23 7
Gelgjan 7
Parvati 6
hafsteinn91 5
cedrella 3
Torfi1 3
abg 3
Aspirine 2
Pikknikk 2
lyras 2
silvercat 2
LeBronJames 2
Catium 2
StrangEEr 2
ellipelli 2
pinkmoon 1
Violet 1
Toggi 1
RemusLupin 1
THT3000 1
bellatrix 1

Það var ein breyting á notendanafni og það útskýrir stökk eins notendans. Einnig lagaði ég nafn aspirine, vona að það sé rétt núna og byðst afsökunar á að hafa stafsett það á rangan hátt í síðustu viku.

Nokkrir notendur eins og DrHaha og MissBlack þóttu síðasta spurning of auðveld. Það er markmið mitt að hafa spurningarnar þannig að allir geti tekið þátt, einhverjar auðveldar og einhverjar erfiðar, en það er mér ánægja að verða við ósk þeirra og hafa eina mjög snúna í þessari viku.

Spurt er um persónu, fyrsta vísbending fimm stig:

Við fylgjumst með honum brjóta lög og reglu en galdramála ráðuneytið gerir ekkert í málinu. Ein persóna reiðist þó við verknaðinn

endið svörin á notendanafn mitt, ekki hér að neðan (þið vitið þetta auðvitað). Gangi ykkur vel í prófunum, Taíland er frábært land, og eins og alltaf, lifið í lukku!
Voldemort is my past, present and future.