Warner Bros. Kvikmyndaverið tilkynnti í dag, 2. febrúar, að upptökur á Harry Potter and the Order of Phonix mundu hefjast í næstu viku. Daniel Radcliffe, Emma Watson og Rupert Grint munu öll fara með rullu sína sem Harry Potter, Hermione Granger og Ronald Weasley.

Það mun vera breski leikstjórinn David Yates sem fær það verk að leikstýra myndinni. Imelda Staunton fær að leika hina heitt elskuðu Dolores Jane Umbridge og mun hún alveg áreiðanlega fara á kostum. Imelda Staunton á að baki sér langan og farsælan feril en fleiri upplýsingar um leikkonuna er hægt að nálgast hér: http://www.imdb.com/name/nm0001767/

Búist er við því að kvikmyndin verði frumsýnd árið 2007.

Fréttavefur CNN greindi frá.