JK Rowling sagði frá því á síðunni sinni nú um dagana að nýja dóttir þeirra Neil Murray hefur nú hlotið hið mikla nafn Mackenzie Jean Rowling Murray!
…Gulla þetta slær þig nú næstum því út!

Sú litla mun þó líkast til einungis vera kölluð Mackenzie Murray.

JK Rowling þakkar fyrir hamingju- og heillaóskir sem henni hafa borist frá aðdáendum víðs vegar úr heiminum og segist meta þær meira en við getum gert okkur grein fyrir.
Hún segir jafnframt að Mackenzie litla sé “ridiculously beautiful” eða fáránlega falleg en segir jafnframt að líklega sé hún hlutdræg.

Þess má að lokum geta að fyrir hönd aðdáenda hennar hér á huga sendi ég þeim mæðgum óskir um hamingju og heilbrigði og fékk til baka þakkir fyrir hlýhuginn.

Kveðja
Tzipporah