“Ég vil fá að vita afhverju Harry hefur aldrei spurt út í ömmur sínar og afa. Maður hefur aldrei fengið að vita neitt um þau annað en að foreldrar James voru góð við Sirius og tóku hann að sér um tíma og að foreldrar Lily voru muggar. Undalegt að spurja ekki hvað varð um þessa 4 einstaklinga sem hefðu getað ættleitt hann í stað frænku hans og frænda.”


Af hverju veit Harry Potter ekkert um afa sína og ömmur? Það hefur um það bil tvisvar sinnum verið talað um Potter-hjónin í bókunum um Harry Potter.

Það sem við vitum um Potter-hjónin eldri eru að þau voru góð og umhyggjusöm og þótti greinilega vænt um James. Þegar Sirius flúði af heiman tóku þau hann að sér og umgengust hann líkt og sinn eigin son. Þetta er það sem við vitum um Potterhjónin. En hvar eru þau nú?

Rowling hefur aldrei sagt okkur hvar afa og amma Harrys eru. Við vitum ekki einu sinni nöfn þeirra. Af hverju fór Harry Potter ekki til föðurömmu sinnar eða afa? Þau voru, að öllum líkindum ekki á lífi. Harry hafði að öllum líkindum fengið að sjá þau, í það minnsta ef þau væru á lífi. Við vitum þó að þau hafa verið þónokkuð vel stæð, í það minnsta hefur James Potter erft mikinn pening sem Harry notar nú til þess að fjármagna bækur. Þar sem hann “erfði” peningana er nánast slegið á fast að þau séu látin. Hvernig dóu þau, er aftur á móti önnur spurning sem vonandi verður svarað í næstkomandi bókum. Það er náttúrulega spurning hvort Voldemort hafi drepið þau.

Við fáum að vita að foreldrar Lilyar voru Muggar. Petunia er Muggi og reynir að vera eins eðlileg og hægt er. Petunia og Lily voru líka svarnar óvinkonur. Kannski út af öfund. Eða ágreiningi þegar eitthvað stórt kom upp á. Svo reynist í það minnsta vera að Lily hafi reynt að hafa samband við hana. Petunia vilrðist ekki vilja hafa neitt samband við Lily, eða svo virðist vera í fyrstu bókinni.

Vandamálið er að við vitum ekki neitt um foreldra Lilyar eða James. Ekki einu sinni nöfnin. Hvort sem Rowling er að geyma þetta til síðar eða hvort þetta sé eitthvað mikilvægt þá vitum við það í það minnsta ekki núna. En af öllum heimildum sem við höfum virðist svo vera að foreldrar James og Lilyar séu látnir.


myndin er eftir Anneth Lagamo. Þarf eitthvað að lýsa þessari mynd freka?:P

http://elfwood.lysator.liu.se/fanq/a/n/anneth3/hp_guardians2.jpg.html