Nú kom sú spurning inn hvað Tonks væri gömul. Svo ég ákvað að reyna að setja saman smá tímalínu um hana. Hér má sjá árangurinn, mjög erfitt!



1975-1976 Tonks fæðist

1986 Tonks byrjar í Hogwarts, ekki vitað á hvaða vist hún var.

1993 Tonks tekur M.U.G.G.A prófin sín.

1993 Tonks útskrifast úr Hogwarts.

1994 Tonks fær skyggnisréttindi eftir að hafa nærri fallið í “Launung og eftirför”

1995 Tonks hjálpar Harry að flýja frá húsi Dursley-fjölskyldunnar.

1996 Tonks berst við móðursystur sína Bellatrix í Galdramálaráðuneitinu og særist illa.


Þannig fáum við það út að hún sé tvítug í lok 6 bókarinnar. Þannig að ef árið í ár væri í Harry Potter bókunum, 2004, þá væri þessi unga dama á sýnu tuttugasta og níunda ári (29 fyrir þá sem ekki kunna lesa).


Ég var að gera eina alsherjar tímalínu um alla…en svo heppilega vildi til henni var eytt!!! En ég er að vinna í henni aftur svo bíðið bara róleg ;)