Er Severus Snape giftur?

Það veit enginn með vissu. Það getur vel verið að hann eigi einhversstaðar konu og barn/börn, en það er ekki vitað fyrir víst.
Ástæðan fyrir því að hann er alltaf svona reiður og leiðinlegur gæti einmitt verið sú að eitt sinn átti hann indæla konu og lítið barn, en hafi svo misst þau og geti ekki endurheimt þau með neinum ráðum. Kannski hafi það verið muggi eða skvibbi og hann sem hataði þannig fólk hafi ákveðið að fara bara burt. Eða norn sem einhver drápari hefur drepið, og þá ákvað Severus Snape að snúa sér til Dumbledores þegar hann hafði misst allt. (Svo er orðrómur í gangi um að hann eigi að verða ástfanginn í 6.bókinni – Harry Potter and the half-blood prince – og þá geti verið að gömul kærasta hans skjóti upp kollinum).

En það yrði ótrúlegt að hann geti haft “góða” hlið á sér. Hvar gæti hann hitt konu sem honum þætti vænt um, og ef hann gæti fundið hana; af hvaða ástæðum myndi hún giftast/trúlofast honum? Hann með sitt fituga hár. Að vísu gæti hann alveg þvegið það, en hann getur ekki þvegið skapið af sér. Kannski bruggaði hann ástardrykk…