Orðrómur er í gangi um að útgáfudagur sjöttu Harry Potter bókarinnar verði tilkynntur í janúar. Orðrómur þessi á að vera uppruninn frá starfsmanni hjá Waldenbooks. Starfsmaðurinn segir að í bæklingi sem hafi verið dreift til starfsmanna komi fram á forsíðu upplýsingar um nýjustu bókina.

“Bókaheimurinn er allur á iði vegna orðróms um að J.K. Rowling muni tilkynna útgáfudag sjöttu Harry Potter bókarinnar einhverntíman í janúar. Þó að þetta séu einu upplýsingarnar sem við höfum í bili þá viljum við vera tilbúin til að láta viðskiptavini okkar vita um leið og tilkynningin um útgáfudaginn kemur.”

Athugið að þetta er aðeins orðrómur og þar af leiðandi ekki hægt að taka mark á honum. :)