Jarvis Cocker og Kynjasysturnar David Heyman, framleiðandi Harry Potter og Eldbikarsins staðfesti það nýlega að söngvarinn og lagahöfundurinn Jarvis Cocker muni ekki aðeins semja hluta af tónlistinni fyrir Harry Potter og Eldbikarinn heldur muni hann einnig birtast á jóladansleiknum sem meðlimur í hinu feikivinsæla tríói, Kynjasystur.

“Við erum að reyna að finna út hvernig Kynjasysturnar munu vera og ég held að þær muni verða mjög áhugaverðar. Jarvis Cocker mun taka þátt og hjálpa okkur að semja lögin, hann mun einnig vera meðlimur í hljómsveitinni. Honum gengur mjög vel að semja, Jarvis er með mikla sköpunargleði og vill gjarnan taka þátt í áhugaverðum verkefnum.”