Svo við hellum okkur aðeins í slúðrið í kringum Harry Potter myndirnar, þá hefur sá orðrómur um að þau Dan Radcliffe (Harry Potter) og Emma Watson (Hermione Granger) séu saman.
Nú hefur leikarinn Jamie Waylett, sem leikur Crabbe í myndunum, svarað þeirri spurningu á blogginu sínu og segir að þau eru alls alls ALLS ekki saman.
Einnig skrifaði hann eftirfarandi:

“~ Ég er nokkuð viss um að enginn í leikarahópnum fari á alls kyns spjöll…. Þannig að ekki trúa fólki þegar það segist vera Dan, Emma, Rupert, Tom, ég eða einhver annar úr hópnum.

~Enginn í leikarahópnum er snobbaður eða egóisti…. okkur kemur öllum mjög vel saman (í alvöru)

~Það hafa ekki verið nein stór rifrildi á milli okkar leikaranna.

~ Ekkert okkar getur reddað þér hlutverki í myndinni… Warner Brothers nota ráðningarfulltrúa fyrir alla, jafnvel aukaleikarana.

~ Já, við vitum öll að við erum MJÖG HEPPIN að hafa verið valin í myndina. :Þ

~ Já, það eru mjög mikið af fölsuðum ”árituðum“ myndum og plakötum á Ebay, sum eru mjög lélegar falsanir. Áður en þú kaupir reyndu að finna alvöru eiginhandaráritun á Harry Potter aðdáanda síðu og berðu áritanirnar saman.

~ Já, ég nota stærð 13 í skóm í bresku númeri ((sem er mjög stórt))

~ og já, mamma mín segir mér ennþá hvað ég á að gera og skammar mig ef ég geri eitthvað rangt :)”



Þá er það komið á hreint. :D