“Kirkjugarðurinn sem Harry lenti í. Hét hann eitthvað sérstakt? Eða var hann eitthvað sérstakur kirkjugarður?”



“Bein föðursins, veitt án vitundar, þú munt endurlífga son þinn!” – Harry Potter og eldbikarinn, blaðsíða 481.

Faðir Voldemorts, Trevor Delgome (á ensku Tom Riddle), bjó í húsinu á hæðinni fyrir ofan kirkjugarðinn sem Harry lenti í og var grafinn þar. Hann var í raun mjög sérstakur og mikilvægur því enginn annar kirkjugarður kom til greina fyrir Voldemort að notast við. Hann þurfti bein úr föður sínum, og þar sem faðir hans var grafinn í þessum kirkjugarði er það nokkuð ljóst hann þurfti að vera í honum og láta Harry birtast þar.

Það kemur aldrei fram hvað kirkjugarðurinn hét, ef hann hafði þá ákveðið nafn. Eina sem við vitum með vissu er að hann var í Litlu Hangleton. Í 300 kílómetra fjarlægð frá Runnaflöt 4, Little Whinging, Surrey, 300 kílómetra fjarlægð frá heimili Harry Potter’s.

Þetta er muggakirkjugarður, ekkert svona bara galdramenn eða neitt þannig, bara ósköp venjulegur muggakirkjugarður sem vildi svo til að mugginn Trevor Delgome var grafinn í.