Tökur eru hafnar á 4.myndinni um Harry Potter, Harry Potter and the Goblet of Fire. Verið er að taka upp atriðin sem tengjast heimsmeistarakeppninni í Quidditch, en sést hefur til tökuliðsins og leikaranna á Beacon Hill nálægt Berkhamsted í Englandi.

Nokkrir aðdáendur fóru á staðinn til að verða vitni af þessum atburði og þeim tókst að taka nokkrar góðar myndir af Daniel Radcliffe, Rupert Grint, Emmu Watson og fleirum á leiðinni á Quidditch leikinn.

Þær myndir má sjá hér, en vegna höfundarréttsins og stærð myndannar get ég ekki sett þær hingað inn:

http://harryloveshermione.com/movie/gof/index.html

Einnig er hægt að sjá fleiri myndir af leikurunum, svo sem Emmu að vinka úr bíl, leikarahópinn að hvíla sig undir tré og margar aðrar myndir. Þær myndir eru á þessari síðu:

http://www.mugglenet.com/mediasp/2004/august/gofsetpics.shtml


Þá er það bara að bíða eftir myndinni…. ;)