Katie Leung, er nýbyrjuð að leika Cho Chang í fjórðu myndinni. Þrátt fyrir það að hún sé nýbyrjuð að leika er hún nú þegar orðið að fórnalamb internetsins.

Nú þegar er fullt af vefsíðum um hina 16 ára gömlu stelpu frá Skotlandi sem leikur Cho Chang. Flestar ef ekki allar vefsíðurnar sem eru gerðar um hana eru gerðar af fólki sem hún hefur oftast en ekki aldrei hitt. En þar eru líka vefsíður sem fólk heldur uppi og telur aðdáendum í trú um að það sé virkilega Katie sem sé að skrifa um líf sitt. Svo er ekki raunin.

Frétta menn CBBC hafa verið í sambandi við Katie og hennar fólk og þau hafa staðfest að allar bloggsíður sem Katie Leung á að hafa verið með eru falsanir. Katie hefur aldrei átt neinskyns blogg á internetinu.

Á Internetinu þarftu ekki neina Polyjuice safa til þess að vera einhver annar en þú ert.

Fyrir nokkrum mánuðum ferðaðist einn aðdáandi Daniels Radcliffes til Englands í þeirri trú að þau myndust hittast en hún hélt að hún hafði verið að tala við Daniel á internetinu. Í raun var hún að tala við einhvern allt annan.

Ef þú heldur að þú hafir verið að lesa blogg Katie Leung um það hvað hún hefur verið að gera eða hefur verið að hafa samband við hana, því miður þá er það ekki hún sem þú varst að tala við, heldur einhver allt annar.