Albus Percival Wulfric Brian Dumbledore “Nitwit! Blubber! Oddment! Tweak!”

Lord Volemort. Ógnvaldur, maðurinn (eða ætti maður kannski að segja “veran” í stað mannsins) sem allri hræðast, en sjálfur hræðist ekki neitt.
Eða jú! Það er eitt sem Tom Riddle hræðist. Einn maður. Maður sem býr yfir undraverðum hæfileikum og krafti. “Hann gerði hluti með sprota sem ég hef aldrei séð áður” – Griselda Marchbanks (Fönixreglan, kafli 31). Maður sem býr yfir ógurlegri visku, maður sem allir treysta, en hefur samt mikið skopskin;

Albus Dumbledore!

Þessi gamli maður, oftast klæddur fjólublárri skikkju, háum skóm með sylgjum og stóran galdrahatt sem hann skiptir stundum út fyrir eyrnaskjól, er skólastjóri Hogwarts, skóla galda og seiða. Hann er einnig formaður af Wizengamot og Galdramannasambandinu. Honum bauðst að setjast í stól Galdramálaráðherra, en hafnaði boðinu, sem varð til þess að Cornelius Fudge settist þar í hans stað. Fudge sendi samt uglu daglega til Dumbledores til að spyrja ráða.

Dumbledore er hár og grannur og með langt bogið nef, sem lítur út fyrir að hafa brotnað a.m.k. einu sinni. Hann gengur með hálfmánalöguð gleraugu og er með svo langt silfurlitað skegg, sem einu sinni var rauðbrúnt, að hann bregður því oft undir beltið. Hann er líka með ör fyrir ofan vinstra hnéð sem er fullkomið kort af lestarkerfi Lundúna. Augun hans eru blikandi og blá.

Honum var gefið nafnið Albus Percival Wulfric Brian Dumbledore.
Albus kemur úr Latínu og þýðir hvítur. Percival var einn af riddurunum við hringborðið og Dumbledore er gamalt enskt orð og þýðir býfluga. JKR segist ímynda sér að hann gangi um kastalann hummandi við sjálfan sig.

Albus hefur áhuga á kammertónlist og keilu. Hann á bróðurinn Aberforth, sem er undarlegur gaur og vinnur sennilega á The Hogs Head (bar).

Albus Dumbledore fæddist um það bil 1840 (gróflega reiknað út frá dagsetningum sem eru gefnar, og gefum við okkur það, að hann sé fæddur 1840, hér á eftir í textanum. Þar gæti því oft skeikað svona 5 árum.) og settist því á skólabekk í Hogwarts, skóla galdra og seiða, árið 1851. Hann var flokkaður í Gryffindor. Hann útskrifaðist þá 1858.

Albus gerist kennari í ummyndun og tekur seinna við skólastjóratitli, eða um 1970.

1945 sigrar hann hinn myrka galdramann Grindelwald.


Dumbledore er Harry sem stoð og stytta og trúir honum alltaf, þó að Harry hafi mjög ólíklegar sögur að segja. Dumbledore er einn skemmtilegasti karakterinn í bókunum, alvitur, en hefur þó alla mannlega eiginleika eins og húmor og hreinskilni.

Þeir sem lesið hafa Hringadróttinssögu sjá væntanlega mikla sameiginlega eiginleika hjá Dumbledore og Gandalfi, en út í þá sálma ætla ég mér nú ekki að fara nánar út í að þessu sinni.