Nýjar myndir úr Fanganum frá Azkaban (update) Alveg glænýjar myndir eru komnar á netið og þær má finna <a href="http://www.mugglenet.com/pics/poapromos.shtml">hér</a>. Um er að ræða 10 myndir og þar sjáum við meðal annars uppblásna Marge frænku, slasaðan Draco, Dumbledore og síðan Sirus Black í fangaklefanum sínum. <a href="http://www.mugglenet.com/pics/poapromo3.shtml“>Myndin af Draco</a> hefur vakið undrun meðal almennings. Hérna er útskýringin:

Draco þykist vera slasaður vegna árásar Grágoggs og teiknar mynd af Harry þar sem hann er aflífaður með raflosti úr eldingu. Hann sendir síðan svaninn til Harrys. Takið eftir hringunum sem Draco, Crabbe og Goyle er með, þeir eru pínulitlir silfur snákar. Aðeins nemendur Slytherins eru með þessa hringi, þeir eru gjöf frá Lucius Malfoy.

*update* Það eru komnar betri og stærri myndir: <a href=”http://www.mugglenet.com/pics/poapromos.shtml">Sjá hér.</a> Þið þurfið að klikka á myndirnar tvisvar sinnum til að sjá stærstu útgáfurnar.

Fangin frá Azkaban er væntanlegur í kvikmyndahús 4. Júní 2004.

Heimildir: <a href=http://www.mugglenet.com>Mugglenet</a>

BudIce
Admin@hp since 26. june 2003 - 10:25