Í Nexus! Ég tók ekkert það margar myndir þegar DH var gefin út og auk þess var þetta ömurleg myndvél sem virkar ekki í dimmu. Og ég þarf að halda henni extra-kyrrt til að ná myndum með næturstillingu.

Allavega, þarna eru nokkrir Hugarar sem ég nafngreini ekki, þeir mega það sjálfir, jólasveinninn kom með Hogwarts-lestinni (sem ég gleymdi að taka mynd af), það er lítill Snape-Legokall þarna og ástin mín eina í lífinu, í líki síðs leðurfrakka sem ég var næstum farin að slefa yfir, er þarna. (Í alvöru, ég dýrka frakka!) Bleiki hausinn er sú sem vann búningakeppnina sem Tonks. (Ég dauðsé eftir því að hafa ekki mætt sem Trelawney, við eigum risastór gleraugu, ég á sítt pils og hamstrakúlu sem ég hefði getað haft rúnir í!)