Nýjar myndir úr Harry Potter og Fönixreglunni tekið úr topp5.is

Nýjar myndir úr nýjasta ævintýri Harry Potters, Harry Potter and the Order of the Phoenix eða Harry Potter og Fönixreglan birtust á netinu fyrr í dag og er hægt að bera þær augun hér fyrir neðan. Myndin er leikstýrð af bretanum David Yates sem á sér gott orð í sjónvarpsbransanum.

Harry Potter og Fönixreglan segir frá fimmta ári í skólagöngu galdrastráksins fræga, sem er nú orðinn 15 ára og hormónarnir tekið völdin. Ýmislegt rekur á fjörur hans, þar á meðal nýr og illgjarn kennari myrku aflanna, vandræði með Quidditch-liðið ásamt yfirvofandi próf, og yfir öllu hvílir svo ógnin af Voldemort.

Kvikmyndin er sýnd IMAX kvikmyndahúsum um allan heim, samhliða hefðbundnum, á frumsýningardeginum þann 13. júlí 2007.