Ókei ég verð að koma einni fáránlegri pælingu að hérna. Hvernig ætli Voldemort byrji daginn sinn?
Ætli hann vakni og skellir hreinsiálögum á sig og sprautar næringu í æð og byrjar að plotta heimsyfirráð?
Eða vaknar hann, fer á klósettið, skellir sér í sturtu, setur roll-on og rakspíra (blóðilmur) á sig, fær sér kaffibolla og ristað brauð eða hrærð egg og fer svo að plotta heimsyfirráð?
Bara ein af þessum heimskulegum pælingum. Hvað finnst ykkur? Að mínu mati er seinni útgáfan mun fyndnari.