Hæ, hæ!

Mig langar til að kynnast íslenskum áhugaspunahöfundum (alveg sama hvaða fandom þið skrifið í) og bjó því til að gamni spjallborð á Fanfiction.net fyrir slíkt. Hérna komist þið á spjallið: http://www.fanfiction.net/forum/Icelandic_fan_fiction/54033/

Reyndar þarf maður að vera skráður á síðuna til að geta tekið þátt í umræðunum en það er ókeypis og tiltölulega einfalt.

Ég veit ekki hvort einhver annar en ég hefur áhuga á þessu eða hvort ég er að gera eitthvað sem er búið að gera annars staðar. Ef svo er endilega látið mig vita.
Tékkið hvort þið hefðuð áhuga á að vera með í spjallinu og ef þið þekkið einhverja sem hefðu hugsanlega áhuga, látið þá vita.
Forever is such a long, long time and most of it hasn't even happened yet.