Hvaða karakter í Harry Potter bókunum og myndunum finnst ykkur vera mest pirrandi? Og hver er uppáhalds karakterinn ykkar?

Ég verð víst að segja Percy Weasley í bókunum miða við hvernig hann var í 5. 6. og 7. bókinni nema í endanum

Í myndunum finnst mér Barty Crouch Jr. vera mest pirrandi. Ég gat ekki tekið hann mikið alvarlega með tunguna út um allt. Og líka finnst mér Dumbledore vera pirrandi í myndunum(Michael Gambon) aðalega því ég fannst hinn(Richard Harris) vera miklu rólegri og betri Dumbledore. Hefði Gambon byrjaði sem Dumbledore hefði mér fundist hann vera skárri líklegast.
Og að lokum er uppáhaldskarakterinn minn Ginny Weasley.