Ég gjörsamlega dýrka Malfoy fjölskylduna og þá sérstaklega Draco, hef víst lesið of mikið af áhugaspuna um þau, hehe.

Annars er ég að leita að nýjum skemmtilegum spuna með þessum persónum, finn samt voðalega sjaldan eitthvað sem er varið í, það er alveg ótrulegt hvað það er til mikið af sorpi inn á ff.net.

Þannig að ef þið getið mælt með einhverju skemmtilegu með Draco þá væri það mjööög vel þegið:) Eitthvað ævintýralegt/rómantískt sem er samt ekki of OOC. Og engar Mary Sues, takk!

Svo mæli ég með
Misconceptions eftir Heart's Cadence, Draco/Ginny, gerist eftir 6.bókina, rosalega góður og spennandi spuni sem ég bara FESTIST við þar til ég kláraði að lesa hann allan.

Svo er Draco: Phoenix rising eftir Cheryl Dyson, þetta er Draco/Hermionie sem ég er venjulega ekki mikið fyrir(þau eru svo ólík!!) en þessi spuni er alveg geðveikur og ógeðslega spennandi.

http://www.fanfiction.net/s/2589657/1/Misconceptions

http://www.fanfiction.net/s/3414902/1/Draco_Phoenix_Rising

En já endilega mæliði með einhverju!
(='.'=)