Þannig er mál með vexti að ég er að skrifa grein fyrir blað nokkurt en greinin fjallar um Potterheiminn og ýsmislegt tengt honum. Ég vil endilega hafa myndir til að fylgja greininni, sér myndir af hverri heimavist og síðan mynd af lógói Hogwartskóla þar sem slagorð skólans sést vel:
“Draco dormiens numquam titillandus.”

Vandamálið er að: Ég finn ekki myndir í nægilega góðri upplausn til þess að það gangi upp í blaðinu.
Ég hef eytt löngum tíma í að leita á google og öðrum síðum en virðist ekki finna neitt almennilegt.

Lumið þið á einhverjum myndum í góðri upplausn af einhverju af þessu?

Eða getið þið bent mér á hvar ég get leitað.

Kv.


Bætt við 20. apríl 2008 - 16:50
Ég er búin að finna lógóin í 75-90kb upplausn, sem ætti að vera nóg.

http://www.newburycomics.com/images/bmh/BU/103-109770NEWBU.jpg