Já fyrst að það hefur ekki komið korkur hérna í smá tíma og ég er að leita mér að góðum spuna til að lesa, þá var ég að spá hvort að þið vissuð um einhvern áhugaverðan spuna (á ENSKU) með Harry Potter þar sem að hann er frekar sjálfstæður, þarf samt ekki að vera rosalegt bash!, klárari, skiptir ekki máli hvaða húsi (slytherin, gryff etc.) og í þessum adventure stíl.

Vill taka fram að ég er að lesa: “Knowledge is Power” sem að ég mæli eindregið með fyrir alla lesendur áhugaspuna og er að leita að einhverju í þeim dúr.
Sá spuni fjallar um Harry sem að er alinn upp af Lupin en pabbi hans er dáinn og mamma hans er á ST.Mungo. Fyrir Harry er tilgangur hans í lífinu að finna lækningu handa henni, en hún er haldin í ólæknanlegu “coma” af völdum Curse (hvað heitir þetta aftur á íslensku) frá Bellatrix,
og hefur hann því gert allt til að læra sem mest á sem minnstum tíma og er vitneskja hans um galdra og því um líkt mjög yfir Average:)

Ég er kannski kominn aðeins fram úr sjálfum mér hérna með lýsinguna en þetta er allavegana góð saga, góð málfræði og frábært plott og Húmorinn finnst mér æðislegur:P (minnir samt að þetta sé rated M eða T)

Takk fyri
Amroth Palantír Elensar