Ég er núna að byrja enn og aftur á allri seríunni. Núna þegar við vitum að Snape var Dumbledores maður ‘through and through’ afhverju sagði hann ekki Dumbledore að Quirrell reyndi að drepa Harry á kústinum í Slytherin vs Griffindor? Sjáum frá minningum Dumbledores hann biðja Snape um að fylgjast með Quirrell. Spurning hvort Snape hafi sagt honum það og því hafi Dumbledore beðið hann að fylgjast með Quirrell?

Harry spáir seinna í bókinni hvort Dumbledore hafi ekki verið að leyfa Harry að spreyta sig. Virkar frekar eins og D. hafi verið að prófa hann á Quirrell, því t.d. finnst mér D. ákveðið blindur að sjá ekki í gegnum Quirrell miðað við mann sem planaði hva 16-17 ár fram í tímann hvernig Harry myndi lifa af og drepa Voldemort.