Hahah rakst á svolítið skemmtilega þýðingu á síðu sambio.is
Ég var semsagt á henni og sá svona auglýsingu um að spila einhvern Harry Potter leik á netinu. Ég klikkaði svona á auglýsinguna og það poppar svona risastór mynd af Daniel sem Harry og stendur fyrir neðan: Spila - Hjálp
Svo stóð svona efst sem titill: BARDAGINN VIÐ DAUÐAÆTURNAR.
Ég að sjálfsögðu spring úr hlátri fyrir þessari aumkunarverðu þýðingu fyrir “Death Eaters” Finnst ykkur ekki að það eigi að kíkja í íslensku bókina áður að posta eitthvað svona á netið!
En já fannst bara svona gaman að þessu og langaði að deila þessu með ykkur:D