R.A.B. SPOILER!!

oki þeir sem hafa lesið 6. bók endilega svara þessu.

Í 28 kafla; Flótti prinsins á blaðsíðu 499 er bréf sem sem kom út úr festinni sem átti að vera helkross:

Til hins myrka herra
Ég veit að ég verð löngu dáinn þegar þú lest þetta.
En ég vil að þú vitir að það var ég sem uppgötvaði leyndarmál þitt.
Ég stal hinum raunverulega helkrossi og ætla
mér að eyðileggja hann um leið og ég get.
Ég mæti dauða mínum í von um að þegar þú hittir jafnoka þinn, verður þú dauðlegur á ný.
R.A.B.

ókay ég varð mjög forvitin þá og var að spá í hver þetta væri. ég meina hann hlýtur að hafa vitað að hann myndi deyja um leið og hann eyðileggði helkrossinn, eða þá að hann hafi verið mjög gamall þá. hver haldið þið að þetta sé? og hvernig komst hann í gegnum þetta heil á höldnu og gerði allt eins. hvernig komst hann af því að Voldemort geymdi helkrossinn sinn þarna.
og hvernig vissi Dumbledor að helkrossinn var þarna í hellinum? allir sem hafa einhverjar tillögur um þetta endilega svara…