Ég var að velta því fyrir mér um daginn hvort Snape væri illur eða ekki…ja ég komst ekki að neinni niðurstöðu frekar en venjulega.

En síðan núna áðan var ég að lesa í Harry Potter og fönixreglunni (maður verður að rifja upp fyrir myndina), nánar tiltekið kaflan þar sem Harry fer í fyrsta tíman í því að blokka hugan, og þá fattaði ég að Snape gæti blokkað hugann sinn fyrir öllum, ef hann kennir Harry það þá hlýtur hann að geta það. En getur hann þá ekki logið að Voldemort án þess að hann viti það?? Og ef hann getur það þá er aldrei að vita nema að Snape sé góður eftir allt saman og að Dumbeldore hafi haft sínar ástæður fyrir því að deyja…

…þetta er kannski ekkert nýtt og kannski er þetta eitthvað rugl í mér en mér finndist gaman að vita hvað öðrum finnst um þetta!
We all live in the