Harry Potter auðvita :D. Annars Hermione og Dumbledor. Vegna þess að það er frábært að heyra Hermione þegar hún er að rífast um hitt og þetta við strákan um námið. Og Dumbledor er bara rólegur og ein besta persóna sem sköpuð hefur verið í bókmenntasögunni.
Ég verð að vera öðruvísi en allir aðrir og segja Molly Weasley. Hún er bara ÆÐI. Aðrir uppáhaldskarakterar eru Remus Lupin.. einnig dásamlegur (nema í myndinni en ég spái ekkert í hana, hann er miklu meira sexy í bókunum en í myndunum) og Ginny Weasley. Snillingur, samblanda af tvíburunum, Molly og Bill Weasley - hefur bestu kosti þeirra allra.
Sirius er líka alltaf darn sexy og skemmtilegur, en þó skemmtilegri í spunum frá því á hans Hogwartsárum heldur en þegar hann var orðinn fullorðinn. Árin í Azkaban höfðu ekki góð áhrif á þroskaferil hans.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..