Hæhæ,

Ég var að hugsa. Ég hef verið að skrifa áhugaspunann “Lucia White - Undarlegir Atburðir í Hogwarts” Undanfarið árið. En núna þá er ég að hugsa um að hætta. Mér finnst það mjög leiðinlegt, en einhver spuni verður að vera sá fyrsti. Núna er ég ekki nógu ánægð með þennann, það les hann enginn og svo er ég líka að skrifa 3 aðra sem mér líkar betur við. Það eina sem mér finnst leiðinlegt við þetta er að þetta var fyrsti spuninn minn, mér er farið að þykja vænt um hann, hehe. Og svo allt plottið, náttúrulega.

En já, ég er ánægðari með það sem ég er að gera í dag, sem BTW má finna hér: www.fanfiction.net/~themaraudergirl og hér: www.fanfiction.net/~mrspadfootmrsmoony , og því hef ég næstum því ákveðið að hætta með hinn. Bara til að láta þá, ef það voru þá einhverjir, sem lásu hann vita.

MKK,
Parvati
We're just two lost souls wimming in a fish bowl.