Mér finnst þessi könnun asnaleg þar sem að það er augljóst að hann er vondur.

1.Hann sagði Voldemort hvar Potter-fjölskyldan átti heima og stuðlaði að dauða James og Lily

2.Hann skellti skuldinni á Sirius

3.“Drap” Bertu Jorkins með því að láta hana í hendur Voldemorts

4.Hann skar Harry fyrir Voldemort í kirkjugarðinum

Það er alveg augljóst að maðurinn er ekki góður, ég geri mér samt grein fyrir því að hann er auðvitað að kúka á sig nálægt Voldemort en það afsakar ekki að hann gerir alla þessa vondu hluti, hann hlýtur allavegana að vera með einhverja illsku í sér þar sem að hann joinaði Voldemort í stað þess að standa með góða fólkinu og fela sig bara á bak við Dumbledore, það er honum sjálfum að kenna að Dumbledore er dáinn núna og getur alls ekki farið yfir til “okkar” núna.