Ég var að enda við að lesa 6. bókina aftur og þar eru 2 atriði sem ég rakst á og finnst þess virði að nefna. Í byrjuninni þegar Snape er að skýra mál sitt fyrir Bellatrix þá segir hann það að hann hafi farið að vinna hjá Dumbledore á Voldemort's orders, semsagt það var ekki hans eigin ákvörðun um að fara til góðu hliðarinnar. Og annað, þegar Harry kallar á húsálfana þá kemur ‘CRACK’ og þeir birtast, eru þeir þá ekki að tilflytjast? Ég hélt að það væri ekki hægt innan Hogwarts..